Vespu dagurinn

Dagur Vespunnar

Vespur eru skemmtileg farartæki og sniðug.  Bræðurnir í Blue Mountain ætla að vera með skemmtilega hjólaferð fyrir alla þá sem eiga vespur, unga sem aldna, þar sem við blöndum saman skemmtun, æfingum og fyrirlestrum fyrir alla þá sem vilja öðlast betri þekkingu og færni á þessi skemmtilegu farartæki.  þetta er ein kvöldstund og kostar kr. 4.500,- fyrir hvern þátttakanda.  Námskeiðið fer þannig fram að allir mæta á vespunni sinni í Rofabæ 9 þar sem Blue Mountain er með aðstöðu og þar verður byrjað á því að fara yfir það hvernig við göngum um þessi tæki svo að þau bili ekki og þjóni sínu hlutverki vel. 

Bræðurnir Sverrir og Haukur Þorsteinssynir sjá um þetta námskeið og eru þeir mjög reyndir og vel þekktir mótorhjóla- og ferðamenn.  Sverrir hefur til að mynda farið í kringum hnöttinn á mótorhjóli og ferðast mikð hér heima og erlendis. Haukur hefur verið keppandi í motocross og enduro keppnum í mörg ár bæði á Íslandi og erlendis. Ætlunin er að miðla af þeirra ómetanlegu reynslu sem þeir hafa af mótorhjólum og fara yfir mörg praktísk atriði sem gott er að hafa í huga þegar ekið er á vespum um götur borgarinnar.  Verð kr. 4.500

 Sjá nánar hér:   VESPUNÁMSKEIÐ