Mótorhjólaferð fyrir Dual-sport hjólin

Mótorhjólaferð ! Við ætlum að fara í stutta og skemmtilega mótorhjólaferð á miðvikudaginn 27. Maí. Ætlunin er að hjóla eitthvað fram eftir kvöldi og eiga skemmtilega stund saman. Ferðin er ætluð Dual-Sport hjólum. (ferðahjólum) Allir eru velkomnir með og kostar ekkert. Veðurspáin er góð og nú er bara að gera hjólið klárt og koma með. Við reiknum með að leggja af stað um kl. 17:00 og heimkoma einhverjum klukkustundum síðar !
Við erum ekki alveg búnir að ákveða hvert við förum, en það verður örugglega eitthvað létt og skemmtilegt. Þetta er góð æfing fyrir sumarið og gott að hrista af sér vetrarslenið. Þið getið komið til okkar í vikunni ef þið þurfið / viljið einhverja aðstoð með hjólin. Við erum með góða aðstöðu þar sem við erum með dekkjavél, mótorhjólalyftu og fleira.
Kveðja
Sverrir og Haukur