Enduro og fjórhjólaferðir

Haustið er frábært til þess að ferðast um Ísland.  Veðrið er oft á tíðum gott, stillt og fallegt, og erlendir ferðalangar eru flestir farnir til síns heima.  Við hjá Blue Mountain ætlum að skella okkur í nokkrar ferðir nú í haust og höfum við skipulagt ferðir allar helgar í september og einhverjar í október.  Á  boðstólnum verða ferðir fyrir enduro hjól, fjórhjól og svo ferðahjólin.  Við leggjum af stað að morgni laugardags og komum til baka á sunnudagseftirmiðdegi.  Gistum á einhverjum skemmtilegum stað, (misjafnt eftir því hvaða ferð er um að ræða) og grillum og borðum saman og eigum saman góða kvöldstund.  Síðan er aftur hjólað á sunnudeginu og endað í bænum seinnipart.  Þetta er tilvalið tækifæri fyrir alla sem vilja nota tækifærið og hjóla í skemmtilegum hópi áður en vetur skellur á.  Í svona ferðum er hægt að læra margt og deila með ferðafélögum góðum sögum eða reynslu.  Þú getur komið á eigin hjóli eða fengið hjól frá okkur.  Skoðaðu betur dagsetningarnar og verðin hér: (smelltu á linkinn)  

Verð og dagsetningar

 

12051250590443HjlaferHlaskgar012.jpg