Sverrir Þorsteinsson er stofnandi og framkvæmdarstjóri Blue Mountain Tours. Fæddur 1963, fjölskyldumaður með 4 börn og hefur verið mótorhjólamaður í 25 ár og seinni árin snúið sér að ferðamennsku á mótorhjólum. Ferðamennska er honum í blóð borin þar sem hann er sonur eins fyrsta fjallaleiðsögumanns landsins og fékk hann oft að fara með í fjallaferðir sem ungur drengur. Sverrir er menntaður sem matreiðslumaður, lauk atvinnuflugmannsprófi í Gimli Kanada 1989, lauk námi í IATA ferðamarkaðsfræði 2007 og MBA, meistarnámi í viðskiptum og stjórnum frá Háskólanum í Reykjavík vorið 2009. Eftir mörg ár í verslun og viðskiptum þá ákvað hann árið 2006 að sameina sínar helstu ástríður, ferðamennsku og mótorhjól í fyrirtækið Blue Mountain Tours. Sverrir sér m.a. um skipulagningu allra ferða og sinnir leiðsögumennsku fyrir erlenda ferðamenn ofl.
Tel: ![]()

![]()
![]()

![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
+ 354 5787860![]()
Mobile: ![]()

![]()
![]()

![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
+ 354 8216386![]()
e-mail: sverrir@bluemountain.is

Haukur Þorsteinsson er fæddur 1966, fjölskyldumaður með tvö börn og mikill áhugamaður um mótorhjól og þá aðallega motocross og enduro en hann og fjölskylda hans hafa verið á kafi í þessari tegund hjólamennsku í fjöldamörg ár. Haukur er einn reynslumesti hjólamaður landsins og hefur verið á mótorhjóli síðan um 14 ára aldur og mikill fengur fyrir Blue Mountain Tours að fá hann í sinn hóp. Haukur var ásamt konu sinni rekstarstjóri skíðavæðisins í Skálafelli í mörg ár og sinnti þar einnig skíðakennslu. Síðustu ár voru Haukur og kona hans stofnendur og eigendur mótorhjólaverslunarinnar Nítró. Haukur er lærður vélvirki og mun bjóða upp á mótorhjólaviðgerðir ásamt kennslu fyrir motocrossara og einnig sinnir hann leiðsögumennsku í enduroferðum.
Tel: ![]()

![]()
![]()

![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
+ 354 5787860![]()
Mobile: ![]()

![]()
![]()

![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
+ 354 8961312![]()
e-mail: haukur@bluemountain.is
Herdís Jónsdóttir er eiginkona Sverris og er hún sölu og markaðsstjóri Blue Mountain Tours. Herdís er fædd 1965 og er stúdent úr Verslunarskóla Íslands og hefur starfað í 20 ár við verslun og þjónustu lengst af með stórfjölskyldunni í Húsgagnahöllini og Intersport en síðari árin rak hún ásamt Sverri barnavöruverslunina BabySam. Herdís er með ferða og golfdellu og notar hverja frístund sem ekki fer í börn og bú til að spila golf eða ferðast innan sem utanlands. Herdís bregður sér líka í eina og eina ferð sem ökumaður fylgdarbíls. Herdís fær leiðsöguréttindi í vor 2010 frá Leiðsöguskólanum í Kópavogi.
Tel: ![]()

![]()
![]()

![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
+ 354 5787860![]()
Mobile: ![]()

![]()
![]()

![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
+ 354 8214386![]()
email: herdis@bluemountain.is

Theodóra Björk Heimisdóttir (Tedda) er eiginkona Hauks og fædd 1964. Tedda er mikil mótorhjólakona og trúlegast með mestu reynslu kvenna hér á landi í motocrossi og enduro. Einnig hefur Tedda ferðast mikið innan sem utanlands á mótorhjólum ásamt því að keppa um alla veröld. Tedda var skíðakennari í Skálafelli í 10 ár ásamt því að vinna við bókhald við hin ýmsu fyrirtæki og síðustu ár við sitt eigið fyrirtæki, Nítró. Tedda sér um bókhald og fjármál Blue Mountain Tours ásamt því að vera liðtækur fararstjóri í enduroferðum og sinna kennslu í motocross fyrir stelpur og stráka.
Tel: ![]()

![]()
![]()

![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
+ 354 5787860![]()
Mobile: ![]()

![]()
![]()

![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
+ 354 8961318![]()
email: tedda@bluemountain.is
Einar Þorsteinsson er eldri bróðir Sverris og Hauks og er hann liðtækur leiðsögumaður sem slæst stundum í hópinn og eru ferðamennska og mótorhjól hans helstu áhugamál en Einar hefur verið á mótorhjólum í 30 ár. Einar er lærður verkfræðingur og fáum oft að njóta krafta hans hér í Blue Mountain Tours ef stærri vandamál koma upp.
Dr. Guðmundur Björnsson er félagi Sverris og haldinn mikilli mótorhjóladellu og með mikla reynslu af mótorhjólum. Guðmundur á það til að slást í hópinn og ekki er verra að hafa svo reyndan lækni sem Guðmund með í ferðum eða aðeins eitt símtal í burtu ef eitthvað skyldi bjáta á.