Fjórhjól

96421246296568QuadtourItalia27.jpg

 Fjórhjóla Ferðir

Ísland er draumaland fjórhjólanna.  Það eru ekki margir sem átta sig á því að hálendi Íslands er alveg einstakt og að ferðast um hálendið á fjórhjóli er engu líkt.  Þú ert úti og tekst á við íslenska veðráttu, en um leið ertu að ferðast um á einföldu en traustu tæki sem veitir þér tækifæri á að upplifa náttúruna á alveg einstakan hátt.  Ekki þarf sérstakt mótorhjólapróf á fjórhjólin, nægir að hafa venjulegt bílpróf.  Endalausir stígar og slóðar sem hægt er að nota og upplifa okkar stórkostlegu og mögnuðu náttúru.  Nú er tækifæri fyrir þig að upplifa þetta allt í góðra vina hópi og með vönum og reynslumiklum mönnum sem sýna þér allt sem hægt er að upplifa í svona ferð.  .  Hvort sem þú er vanur eða óvanur þá eru þetta ferðir fyrir þig.  Þeir sem eru að stíga fyrstu skrefin í þessu læra þá af þeim reynslumeiri og hinir vönu njóta þess að geta deilt reynslu sinni með örðum hjólamönnum.  Nú er bara að finna réttu ferðina fyrir þig og vini þína og hafa samband sem fyrst.

 

 Dagsferð:
Einfaldar, skemmtilegar og förugar dagsferðir eru boði alla daga sem veður leyfir.  Nokkrar leiðir eru í boði, sem allar eru áhugaverðar og kannski sumar svolítið ögrandi.
Innifalið í verði:  Fjórhjól, tryggingar, bensín, fararstjórn, létt máltíð.

Dagsetningar:     Alltaf þegar fært er.


57851252145561Quad1.jpg


 2ja daga ferð:
Tveggja daga skemmti og átaksferðir um Ísland.  Lagt af stað að morgni og komið heim síðdegis næsta dag.  Hægt er að velja um einfaldar og léttar enduro leiðir eða meira krefjandi ferðir þar sem átök eru mun meiri.  Gist á einföldum gististöðum en notalegum.
Innifalið í verði:  Fjórhjól, tryggingar, bensín, fararstjórn, kvöldmatur, morgunmatur.
Ekki innifalið:  Áfengir drykkir, hádegisverður.

74491252145559Quad5.jpg


 3ja-daga ferð:
Þriggja daga skemmti og átaksferðir um Ísland.  Lagt af stað að morgni og komið heim síðdegis tveimur dögum seinna.  Hægt er að velja um einfaldar og léttar enduro leiðir eða meira krefjandi ferðir þar sem átök eru mun meiri.  Gist á einföldum gististöðum en notalegum.
Innifalið í verði:  Fjórhjól, tryggingar, bensín, gisting, kvöldmatur, morgunmatur, fararstjórn og leiðsögn, aðgangseyrir inn á söfnin og í hvalaskoðunina.
Ekki innifalið:  Áfengir drykkir.

 



86981252145558Quad3.jpg


 4ja -daga ferð:
Fjögurra daga alvöru endurferð um hálendi Íslands.  Þessi ferð tekur vel á og þurfa allir að hafa einhverja reynslu af enduro hjólum til að komast með í þessa ferð.  Skemmilegur félagsskapur, góður matur, mikil átök og líkamleg þreyta, gera þessa ferð að ógleymanlegri ferð.  Safnaðu saman vinum þínum og bókið ykkur strax í dag.
Innifalið í verði:  Fjórhjól, tryggingar, bensín, gisting, kvöldmatur, morgunmatur, fararstjórn og leiðsögn, aðgangseyrir inn á söfnin og í hvalaskoðunina.
Ekki innifalið:  Áfengir drykkir.

 

21041252146959Quad2.jpg


 Sérsniðnar ferðir:
Ef þú ert með þínar eigin hugmyndir um góða eða skemmtilega ferð, þá skaltu bara hafa samband við okkur sem fyrst og við getum búið til i sameiningu þína draumaferð.  Allt er mögulegt, einfalda og auðvelda ferð, flókna og erfiða ferð, og allt þar á milli.  Við getum blandað saman við ferðirnar allskonar öðrðum ævintýrum svo sem hvalaskoðun, hellaskoðun, snjósleðaferðum eða hverju öðru sem þér dettur í hug.  Hafðu samband og við leysum málin.