Pure Adventure

62011240430694tourng.jpg

 

Dagur 1.

Fyrsta daginn hittumst við í húsnæði Blue Mountain, Rofabæ 9 þar sem við gerum okkur klár og förum létt yfir málin.  Hjólin eru gerð klár fyrir þá sem leigja hjól og aðrir mæta á sínum hjólum.  Rennt verður yfir ferðina og helstu umferðareglur áður en lagt verður af stað.

Að því loknu leggjum við að stað og byrjum á því að hjóla austur meðfram suðurströndinni áður en við förum uppá hálendið.  Stoppum og fáum okkur humarsúpu í hádeginu og höldum svo í átt til Landmannalauga þar sem við gistum fyrstu nóttina.  Þar verður boðið uppá góðan kvöldverð að hætti Sverris úti í náttúrunni og kvöldið endað í heitum böðum og þreytan látin líða úr skrokknum.

Dagur 2.

Næsta morgun eftir góðan morgunverð, leggjum við að stað frá Landmannalaugum og liggur þá leiðin inná hinn magnaða Sprengisand og má búast við því að við þurfum að fara yfir einhverjar ár og upplifa einhver ævintýri. Við munum stoppa nokkrum sinnum á leiðinni til að taka myndir og njóta útsýnisins.  Seinnpart dags komum við svo á Mývatn þar sem við gistum á hóteli.  Fyrir góðan kvöldverð er svo tilvalið að fara í heitu náttúrulindirnar á Mývatni.

Dagur 3.

Tökum daginn snemma og hjólum að stað en á þessum legg verður líka þó nokkuð um malarvegi en við hjólum meðfram Jökulsá á Fjöllum og heimsækjum vatnsmesta foss í Evrópu, Dettifoss.  Þaðan hjólum við svo í Ásbyrgi þar sem við munum stoppa til að fá okkur snæðing og njóta fegurðarinnar sem svæðið hefur uppá að bjóða.  Eftir gott stopp liggur leiðin til höfuðstaðar norðurlands, Akureyri þar sem við munum gista á hóteli og borða á Friðrik V. og njóta kvöldsins og góðs félagsskapar.

Dagur 4.

Næsta morgun eftir góða hvíld og staðgóðan morgunverð liggur leiðin frá Akureyri og við hjólum í átt að Kjalvegi sem liggur á milli Langjökull og Hofsjökuls.  Þetta er skemmtileg leið og við munum stoppa uppá hálendinu til að njóta staðar og stundar.  Næsti gististaður verður á Kerlingafjallasvæðinu og boðið uppá góðan kvöldverð.

Dagur 5.

Næsta dag hjólum við að stað frá Kerlingafjallasvæðinu suður í átt að Gullfoss og Geysi þar sem við stoppum eða í næsta nágrenni til að fá okkur hressingu.  Þaðan liggur leiðin til Þingvalla þar sem við teygjum úr okkur og njótum fegurðarinnar sem Þingvellir hafa uppá að bjóða. Síðan liggur leið í átt til Reykjavíkur þar sem við áætlum komum seinnipart í Rofabæ 9.

 

Innifalið í ferð:  Mótorhjól með fullan útbúnað, gps ef þörf er á.  Bensín, tryggingar, leiðsögumaður, fylgdarbíll, (ef fleiri en 3 eru í ferð) öll gisting, (aukaverð fyrir einstaklingsrúm), svefnpokar, morgun- og kvöldverðir.

 

29151241007010NttKortPureAdventure.jpg