Dual-Sport

Dual-Sport Ferðir
Okkar einstaka land með okkar einstöku sögu, náttúru og mögnuðu menningu, gerir Ísland að draumalandi mótorhjólamannsins. Að ferðast um landið á mótorhjóli er engu líkt og enginn getur skilið þá ánægju og upplifun sem svona ferðalög veita, nema að prófa sjálfur. Blue Mountain Adventure Tours, sérhæfir sig í ferðum á mótorhjólum og öðru sem því tengist. Dual-sport hjólin, eða ferðahjólin, eins og við köllum þau, eru grunnurinn að starfsemi fyrirtækisins. Nú gefst þér kostur á að ferðast með okkur í lengri eða skemmri ferðir í góðum félagsskap og upplifa þennan einstaka ferðamáta. Hér fyrir neðan eru dæmi um góðar og skemmtilegar ferðir sem þú getur tekið þátt í, annaðhvort á þínu eigin hjóli eða á hjóli frá okkur. Skoðaðu þetta vel og hafðu samband sem fyrst.
Einfaldar, skemmtilegar og fróðlegar dagsferðir eru boði alla daga sem veður leyfir. Nokkrar leiðir eru í boði, sem allar eru áhugaverðar og kannski sumar svolítið ögrandi.
Innifalið í verði: Mótorhjól, tryggingar, bensín, fararstjórn, létt máltíð.
Verð: Evrur 390,- per mann.
Verð: 190,- per mann. - Eigið mótorhjól.
Dagsetningar: Alltaf þegar fært er.
Tveggja daga skemmti og fræðsluferðir um Ísland. Lagt af stað að morgni og komið heim síðdegis næsta dag. Hægt er að velja um einfaldar malbiksferðir eða meira krefjandi ferðir þar sem farið er inn á hálendið. Gist á einföldum gististöðum en notalegum.
Innifalið í verði: Mótorhjól, tryggingar, bensín, fararstjórn, kvöldmatur, morgunmatur.
Ekki innifalið: Áfengir drykkir, hádegisverður.
Verð: Evrur 890,- per mann.
Verð: Evrur 590,- per mann. - Eigið mótorhjól.
|
Menningar og söguferð - 7-dagar:
|
Þessi ferð er fyrir alla sem vilja blanda saman útivist, mótorhjólasportinu, menningar og söguáhuga og matarmenningu Íslands. Ferð fyrir alla mótorhjólamenn, með litla eða mikla reynslu. Nánast eingöngu malbik og því fremur auðvelt að hjóla. Þessi ferð snýst meira um upplifun á landi og þjóð, fremur en mótorhjólin. Einstök ferð sem enginn má missa af. Við heimsækjum söfn, förum í stuttar göngur, skellum okkur í hvalaskoðun ofl ofl. Við gistum á forvitnilegum og skemmtilegum gististöðum og borðum á forvitnilegum veitingastöðum sem bjóða okkur upp á íslenskan og þjóðlegan mat.
Innifalið í verði: Mótorhjól, tryggingar, bensín, gisting, kvöldmatur, morgunmatur, fararstjórn og leiðsögn, aðgangseyrir inn á söfnin og í hvalaskoðunina.
Ekki innifalið: Áfengir drykkir.
Verð: Evrur 3.400,- per mann.
Verð: Evrur 2.000,- per mann. - Eigið mótorhjól.
Ef þú ert með þínar eigin hugmyndir um góða eða skemmtilega ferð, þá skaltu bara hafa samband við okkur sem fyrst og við getum búið til i sameiningu þína draumaferð. Allt er mögulegt, einfalda og auðvelda ferð, flókna og erfiða ferð, og allt þar á milli. Við getum blandað saman við ferðirnar allskonar öðrðum ævintýrum svo sem hvalaskoðun, hellaskoðun, snjósleðaferðum eða hverju öðru sem þér dettur í hug. Hafðu samband og við leysum málin.